18.11.2020
Ný sýning á Kjarvalsstöðum: ÓraVídd
Ný yfirlitssýning á verkum Sigurðar Árna Sigurðssonar myndlistarmanns, ÓraVídd, hefur verið sett upp á Kjarvalsstöðum.
Sigurður Árni Sigurðsson á að baki áhugaverðan listferil og hefur hann útfært verk sín með fjölbreyttum hætti. Hann hefur alla tíð spunnið stef við málverkið og tekist á við eiginleika þess miðils. Verk hans fjalla um það hvernig við horfum á heiminn í kringum okkur, þau vekja spurningar um eðli og takmörk sjónsviðsins og hvernig það leggur grunn að heimsmynd okkar. Þar kallast á bæði það sem sést með berum augum og einnig það sem við sjáum ekki.
Samhliða sýningunni gefum við út glæsilega sýningarskrá og bætist hún í bókaflokk Listasafns Reykjavíkur um framúrskarandi samtímalistamenn.