05.06.2019
Síðustu sýningadagar á Frumefni náttúrunnar
Sýningunni Frumefni náttúrunnar eftir Brynhildir Þorgeirsdóttur lýkur á mánudag, annan í hvítasunnu, 10. júní.
Verk Brynhildar er að finna í öllum helstu söfnum landsins auk safna í ýmsum löndum austan hafs og vestan. Hún hefur hlotið styrki og viðurkenningar fyrir verk sín og meðal annars tvisvar fengið úthlutun úr The Pollock- Krasner Foundation.
Af verkum í almenningsrýmum má nefna Landslagsmynd í Garðabæ, Klett sem stendur við Leirvoginn í Reykjavík, og Pendúl hússins í Menntaskólanum í Kópavogi. Einnig stendur útilistaverk eftir Brynhildi í Alingsås í Svíþjóð.