Sýningaropnun – D33 Tónn: Anna Fríða Jónsdóttir

Sýningaropnun – D33 Tónn: Anna Fríða Jónsdóttir

Sýningin Tónn eftir Önnu Fríðu Jónsdóttur verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi, miðvikudag 28. mars kl. 17.00. 

Þrítugasti og þriðji listamaðurinn í D-salarröð Listasafns Reykjavíkur er Anna Fríða Jónsdóttir. Anna Fríða skoðar veröldina í kring um sig eins og úrval af hljóðfærum þar sem ýmislegt er í boði, pákur, píanó, bjöllur og strengir. Hún fangar hljóðbylgjurnar og býr þeim form í verkum sínum. Hún gerist hljómsveitastjóri náttúrunnar þegar hún stendur upp á trjábol og stjórnar skógarsinfóníu, býr til tónlist úr heilabylgjum og reynir að hafa áhrif á þær með rödd sinni, smíðar tónverk úr snörpum vindhviðum og undirtónum öldunnar.

Í verkinu Tónn speglar Anna Fríða hugleiðingar sínar í náttúrunni og gerir tilraun til að hluta niður heildina. Á sýningunni má sjá bæði vídeóverk og skúlptúra.

Sýningarstjóri er Klara Þórhallsdóttir.

Fimmtudag 12. apríl kl. 20.00 verður Anna Fríða með leiðsögn um sýninguna.

Anna Fríða hefur sýnt verk og gjörninga víðsvegar, tekið þátt í fjölmörgum samsýningum á Íslandi, í Bandarkjunum og í Evrópu. Meðal nýlegra sýningarverkefna má nefna einkasýningu í Laugalækjagallerý (2016), opnunargjörning á sýningunni Ríki: Flóra, fána, fabúla í Listasafni Reykjavíkur (2016) og einnig tók hún þátt í samsýningunni The Silver Lining fyrir hönd Liechtenstein á Feneyjatvíæringnum árið 2015.

Anna Fríða Jónsdóttir (1984) lærði myndlist við Listaháskóla Íslands árið 2010 og lauk M.A námi frá Art and Science í The University of Applied Arts í Vín. Hún býr og starfar í Reykjavík.

Í D-sal Hafnarhússins eru að jafnaði sýnd verk eftir listamenn sem ekki hafa áður haldið einkasýningar í stærri söfnum landsins. Markmið sýningaraðarinnar er að gefa efnilegum listamönnum tækifæri til að vinna innan veggja safnsins og beina athygli gesta að nýjum og áhugaverðum hræringum innan listheimsins. Á árinu 2018 eru áætlaðar alls fjórar sýningar í sýningaröðinni.