Sýningaropnun – Hrafnhildur Arnardóttir / Shoplifter: Chromo Sapiens

Sýningaropnun – Hrafnhildur Arnardóttir / Shoplifter: Chromo Sapiens

Innsetningin Chromo Sapiens eftir Hrafnhildi Arnardóttur / Shoplifter verður opnuð fimmtudaginn 23. janúar kl. 20.00 í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi.
 
Chromo Sapiens var framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum 2019. Hljómsveitin HAM semur tónverk sem hljómar í verkinu og mun sveitin koma fram á opnuninni. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, opnar sýninguna.

Chromo Sapiens er þakið miklu magni af einkennisefniviði listamannsins; gervihári. Litir, hljóð og aðlaðandi áferð leiða gesti í gegnum þrjú ólík rými. Fyrst eru það drungaleg hellakynni, Primal Opus, í litasamsetningum eldhræringa sem virkjuð eru af neðanjarðar hljóðheimi hljómsveitarinnar HAM. Næst er það Astral Gloria, þar sem skærlitaðar hárbreiður bylgjast um og litadýrð, áferð og hljóðmynd örva skilningarvitin með æpandi litum bifandi hárfaðms sem mýkist við lendingu í himnesku hreiðri Opium Natura. Þar flökta dúnmjúkir litatónar sem umvefja gesti friðsæld og sakleysi sjónrænnar alsælu.

Listsköpun Hrafnhildar Arnardóttur (f. 1969), sem einnig er þekkt sem Shoplifter, liggur á mörkum myndlistar, gjörninga og tísku og sækir hún áhrif frá dægurmenningu og fjöldaframleiðslu, auk alþýðulistar og handverkssögu. Á undanförnum fimmtán árum hefur hún á umfangsmikinn hátt kannað notkun og táknrænt eðli hárs, sjónræna og listræna möguleika þessarar líkamlegu afurðar og hvernig upplifa megi hár sem birtingarmynd sköpunar í nútíma menningu. 

Tónverkið sem HAM semur fyrir Chromo Sapiens, ómar um loðinn ham innsetningarinnar og djúpar drunur og dynjandi niður hreyfir við skynfærum gesta. HAM hefur einnig samið einkennislag fyrir sýninguna en í textanum segir: „Þú átt ekki séns og sál þín er lens nema þú opnir hjarta þitt fyrir Chromo Sapiens“.

Birta Guðjónsdóttir, sýningarstjóri Chromo Sapiens í íslenska skálanum í Feneyjum, segir um verkið: „Maður gengur inn í verkið sem Homo Sapiens en gengur út sem Chromo Sapiens.”

Um 40.000 gestir heimsóttu íslenska skálann í Feneyjum og hafa umfjallanir um verkið birst í nær eitt hundrað alþjóðlegum listtímaritum og dagblöðum. Það er mikill fengur fyrir safngesti Listasafns Reykjavíkur að fá að upplifa verkið á Íslandi. Sýningin er unnin í samstarfi við Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar.