06.03.2017
Sýningu Önnu Hrundar Másdóttur lýkur 12. mars
Sýningin Fantagóðir minjagripir eftir Önnu Hrund Másdóttur í D-sal Hafnarhússins hefur verið framlengd um eina viku. Sýningin er sú 29. í sýningarröðinni. Anna Hrund leitar að listinni í sínu nánasta umhverfi og gerir tilraunir til að sameina undirmeðvitund og íhugun raunverulegum hlutum. Anna Hrund finnur hluti úr ýmiss konar landslagi, geymir þá og flytur milli heimila og heimsálfa. Hún tekur hlutina í sundur og endurraðar, og færir okkur vönd - uppstillingu af uppgötvunum úr raunveruleikanum.