Við leitum að starfsfólki í gæslu
Listasafn Reykjavíkur óskar eftir að ráða starfsfólk í tímavinnu við gæslustörf um helgar. Um er að ræða starf við gæslu á listmunum og sýningarrýmum í Hafnarhúsi og á Kjarvalsstöðum. Vinnutími er frá kl. 10-17 aðra hvora helgi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Gæsla á listmunum og sýningarrýmum.
Hæfniskröfur
Óskað er eftir stundvísum einstaklingum 20 ára og eldri með reynslu af afgreiðslu- og þjónustustörfum.
Lögð er áhersla á góða íslensku- og enskukunnáttu.
Hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulund er nauðsynleg.
Leiðarljós Listasafns Reykjavíkur er að sinna hlutverki sínu á framúrskarandi hátt, vera í öndvegi íslenskra listasafna og skapa sér orðstýr á alþjóðlegum mælikvarða sem verðugur viðkomustaður allra unnenda samtímalistar.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur: 10.5.2016
Ráðningarform: Ótímabundin ráðning
Númer auglýsingar: 302
Nafn sviðs: Menningar- og ferðamálasvið
Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Friðbertsdóttir í síma 411-6400 og tölvupósti anna.fridbertsdottir@reykjavik.is