Leiðsögn sýningarstjóra: Þar sem heimurinn bráðnar
Einar Geir Ingvarsson sýningarstjóri verður með leiðsögn um sýninguna Ragnar Axelsson: Þar sem heimurinn bráðnar í Hafnarhúsi.
Athugið að skráning er nauðsynleg HÉR.
Í meira en 40 ár hefur Ragnar Axelsson myndað fólk, dýr og landslag afskekktustu svæða norðurslóða, þar með talið hér á landi, í Síberíu og á Grænlandi. Hann vinnur nú að því að stækka þetta svæði og ferðast mjög víða í leit sinni að myndefni. Í ljósmyndaverkum sínum og ljósmyndabókum endurspeglar hann óvenjuleg tengsl íbúa norðurslóða við öfgakennt umhverfi sitt – tengsl sem eru nú stöðugt að breytast vegna breytinga á loftslagi. Ragnar skrásetur hvernig þessar breytingar hafa áhrif á líf fólks og dýra og hvaða ógn býr að baki hlýnun jarðar.
Þar sem það er fimmtudagurinn langi er enginn aðgangseyrir!