Veldu ár
Friðarsúlan í Viðey
Friðarsúlan er útilistaverk eftir Yoko Ono sem var reist í Viðey árið 2007 til að heiðra minningu Johns Lennons. Listaverkið er tákn fyrir baráttu Ono og Lennons fyrir heimsfriði. Friðarsúlan tekur á sig form óskabrunns en á hana eru grafin orðin „hugsa sér frið“ á 24 tungumálum en enska heitið er vísun í lagið „Imagine“ eftir John Lennon. Upp úr brunninum stígur ljóssúla sem er saman sett úr fimmtán geislum sem sameinast í einu sterku ljósi. Þann 9. október 2007 var listaverkið tileinkað minningu Johns Lennon sem hefði þá orðið 67 ára. Á hverju ári lýsir friðarsúlan frá 9. október (fæðingardegi Lennons) til 8. desember (dánardags hans).
Verkið er nátengt öðru listaverki Yoko Ono; Wish Tree frá 1996. Þar hefur hún boðið öllum sem vilja að skrifa þeirra persónulegu óskir um frið og hengja á greinar innlendra trjátegunda. Óskunum hefur hún safnað saman í gegnum áratugina og telja þær yfir milljón eins og er. Óskirnar eru teknar saman víðsvegar um heiminn og þær sendar til Íslands. Þeim er svo komið fyrir í brunni Friðarsúlunnar. Ljósgeisli súlunnar lýsir svo á táknrænan hátt kröftugum óskum fólks frá öllum heimshornum upp í himinhvolfið, hvatningarljós friðar og samstöðu. Óskatrjám er komið fyrir í húsakynnum Listasafns Reykjavíkur – Hafnarhúsi, Kjarvalsstöðum og Ásmundarsafni.
„Ég vona að friðarsúlan muni lýsa upp óskir um heimsfrið hvaðanæva að úr veröldinni og veita hvatningu, innblástur og samstöðu í heimi þar sem nú ríkir ótti og ringulreið. Sameinumst um að gera friðsæla veröld að veruleika.“ – Yoko Ono
Upplýsingar um óskatrén er að finna á vefsíðu Friðarsúlunnar www.imaginepeacetower.com
Friðarsúlan er samstarfsverkefni Yoko Ono og Reykjavíkurborgar og er í umsjá Listasafns Reykjavíkur og Borgarsögusafns sem hefur umsjón með Viðey.
Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.