Listasafn Reykjavíkur á Menningarnótt
Listasafn Reykjavíkur býður gestum upp á fjölbreytta dagskrá í Hafnarhúsi og á Kjarvalsstöðum á Menningarnótt, laugardaginn 20. ágúst. Þennan dag er ókeypis inn í Hafnarhús kl.10-23.00, Kjarvalsstaði kl. 10-22.00 og í Ásmundarsafn kl. 10-17.00 – og mikið um dýrðir.
Verið öll hjartanlega velkomin!
DAGSKRÁ
Hafnarhús
Á Menningarnótt getur fjölskyldan ferðast saman með gulan bakpoka um sýninguna Erró: Sprengikraftur mynda. Guli bakpokinn er fullur af forvitnilegum hlutum til að upplifa sýninguna á skapandi og skemmtilegan hátt. Enn fremur verður boðið uppá ratleik, klippi-listasmiðju, leiðsagnir Halldórs Baldurssonar teiknara og örleiðsagnir um sýninguna. Frá kl. 18-23.00 verður Pop-up bar starfræktur á 2. hæð í Hafnarhúsi og frá kl. 20-22.00 verður DJ OPEN með danspartý á bryggjunni, 2. hæð þar sem myndlistarmennirnir Arnar, Hildigunnur, Una og Örn Alexander sjá um lifandi danstónlist fram á kvöld. Opið er í Hafnarhúsi frá kl. 10-23.00.
10-18.00
Smiðja: Klippivíðátta. Gestir geta sest niður, klippt og límt og tekið þátt í að skapa víðáttumynd í anda Errós. Smiðjan er staðsett á 2. hæð í Hafnarhúsi, á bryggjunni.
14.00 og 15.00
Leiðsögn skrípóteiknara: Sprengikraftur mynda. Halldór Baldursson, margverðlaunaður teiknari, verður með tvær leiðsagir um sýninguna. Fyrri leiðsögnin hefst kl. 14.00 og hin síðari kl. 15.00.
17.00, 17.30, 18.00, 18.30, 19.00, 19.30 og 20.00
Örleiðsagnir: Sprengikraftur mynda. Reglulegar 10 mínútna örleiðsagnir um valin verk á sýningunni Erró: Sprengikraftur mynda. Leiðsagnirnar verða á hálftíma fresti og byrjar fyrsta leiðsögnin kl. 17.00 og sú síðasta kl. 20.00
18-23.00
Pop-up bar. Malbygg Brugghús verður með pop-up bar í kaffistofunni á 2. hæð í Hafnarhúsi.
20-22.00
DJ OPEN. Danspartí á bryggjunni, 2. hæð Hafnarhúss. Myndlistarmennirnir Arnar, Hildigunnur, Una og Örn Alexander sjá um að þeyta skífum fyrir dillandi dansi.
Kjarvalsstaðir
Boðið upp á dagskrá fyrir fólk á öllum aldri. Opin saumasmiðja verður starfrækt í tengslum við sýninguna Spor og þræðir, örleiðsagnir verða um Andlit úr skýjum og Spor og þræði auk þess sem sýningarstjórar beggja sýninga verða með leiðsagnir. Huldumaður og víbrasjón leikur þekkt íslensk dægurlög í glænýjum og framandi búningi inni á sýningunni Andlit úr skýjum og jazzpíanistinn Baldvin Snær Hlynsson leikur fyrir gesti. Opið er á Kjarvalsstöðum frá kl. 10-22.00.
15-17.00
Leikum að list: Gripið í nál. Opin saumasmiðja þar sem öll fjölskyldan getur gripið í nál og þráð og saumað út.
15.00 og 16.00
Örleiðsagnir: Spor og þræðir. Stuttar og snarpar leiðsagnir um valin verk á sýningunni Spor og þræðir. Leiðsagnirnar verða tvær og byrjar sú fyrri kl. 15:00 og sú seinni kl. 16:00.
15.30 og 16.30
Örleiðsagnir: Andlit úr skýjum. Örleiðsagnir um valin verk á sýningunni Andlit úr skýjum – mannamyndir Jóhannesar S. Kjarvals. Leiðsagnirnar verða tvær og byrjar sú fyrri kl. 15.30 og sú seinni kl. 16.30.
17.00
Tónleikar: Huldumaður og víbrasjón. Dúettinn leikur þekkt íslensk dægurlög í glænýjum og framandi búningi inni á sýningunni Andlit úr skýjum – mannamyndir Jóhannesar S. Kjarvals. Dúettinn skipa Hekla Magnúsdóttir og Sindri Freyr Steinsson.
18.00
Leiðsögn sýningarstjóra: Spor og þræðir. Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir, annar sýningarstjóri Spora og þráða, verður með leiðsögn um sýninguna.
20.00
Baldvin Snær Hlynsson leikur af fingrum fram. Píanóleikarinn Baldvin Snær Hlynsson leikur jazzperlur fyrir gesti og gangandi.
20.00
Leiðsögn sýningarstjóra: Andlit úr skýjum. Aðalsteinn Ingólfsson, sýningarstjóri, verður með leiðsögn um sýninguna Andlit úr skýjum – mannamyndir Jóhannesar S. Kjarvals.
Hljómskálagarður
13.00
Leikum að list – Fjölskylduleiðsögn. Leiðsögn fyrir alla fjölskylduna um Perlufesti – höggmyndagarð kvenna sem staðsettur er í suðvestur horni Hljómskálagarðs.
Ásmundarsafn
Safnið verður opið kl. 10-17.00 og hægt verður að skoða sýninguna Loftskurður þar sem myndlistarmaðurinn Rósa Gísladóttir sýnir verk sín í samtali við verk Ásmundar Sveinssonar.