22. september 2022 - 20:00
Leiðsögn um Erró: Sprengikraftur mynda
Staður viðburðar:
Hafnarhús
Markús Þór Andrésson, deildarstjóri sýninga og miðlunar, verður með leiðsögn um sýninguna Erró: Sprengikraftur mynda, fimmtudag 22. september kl. 20.00 í Hafnarhúsi.
Skráning HÉR
Sprengikraftur mynda er sett upp í öllu Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi og eru þar meira en 300 listaverk af ýmsum gerðum, sem og ljósmyndir og annar fróðleikur um listamanninn. Sýningin rekur gjörvallan feril Errós eftir tímabilum og þemum, í öllum sínum fjölbreytileika, allt fram til nýjustu verka hans. Hér er afrakstur sjö áratuga vinnu þar sem sjá má hvernig myndir eftir aðra og úr kunnuglegum myndheimi
Sýning:
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.