22. september 2022 - 20:00

Leiðsögn um Erró: Sprengikraftur mynda

Markús Þór Andrésson, deildarstjóri sýninga og miðlunar. Ljósmynd: Hildur Inga Björnsdóttir.
Staður viðburðar: 
Hafnarhús

Markús Þór Andrésson, deildarstjóri sýninga og miðlunar, verður með leiðsögn um sýninguna Erró: Sprengikraftur mynda, fimmtudag 22. september kl. 20.00 í Hafnarhúsi.

Skráning HÉR

Sprengikraftur mynda er sett upp í öllu Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi og eru þar meira en 300 listaverk af ýmsum gerðum, sem og ljósmyndir og annar fróðleikur um listamanninn. Sýningin rekur gjörvallan feril Errós eftir tímabilum og þemum, í öllum sínum fjölbreytileika, allt fram til nýjustu verka hans. Hér er afrakstur sjö áratuga vinnu þar sem sjá má hvernig myndir eftir aðra og úr kunnuglegum myndheimi

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.