5. mars 2023 - 11:00
Vefsmiðja fyrir fjölskyldur
Staður viðburðar:
Kjarvalsstaðir
Sunnudaginn 5. mars kl. 11.00 mun listamaðurinn Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir leiða vefsmiðju fyrir börn og fjölskyldur í tenglsum við sýningu Hildar Hákonardóttur, Rauður þráður á Kjarvalsstöðum.
Hver og ein fjölskylda fær tækifæri til að vinna saman að veflistaverki.
Dagskráin er miðuð að því að börn komi í fylgd fullorðinna og að heimsóknin sé þannig skemmtileg og skapandi samvera milli kynslóða.
Frítt fyrir börn yngri en 18 ára.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.