Veldu ár
Ásmundur Ásmundsson: Hola
Sýning Ásmundar er hluti af sýningaröð Listasafns Reykjavíkur þar sem ljósi er varpað á tengsl safnsins við samfélagið. Ásmundur er vel kunnur fyrir afdráttarlausa gagnrýni á samfélagið og samferðamenn hvort sem er á vettvangi myndlistar eða ritlistar.
Á sýningunni nálgast Ásmundur viðfangsefni sitt með þrívíðu verki, myndbandi og ljósmyndum. Hann dregur upp mynd af samfélaginu eins og það blasir við honum í dag í kjölfar græðgi og spillingar. Með aðstoð grunnskólabarna gróf hann stóra holu á Miklatúni, fyllti hana með steypu og flutti steypuklumpinn síðan í sýningarsal Hafnarhússins. Holan stendur óhreyfð sem hluti af sýningunni en með verkinu í heild sinni skírskotar Ásmundur til þess ástands sem nú ríkir í þjóðfélaginu en hann hefur gagnrýnt opinberlega ýmislegt í aðdraganda þess.
Verk Ásmundar í A-salnum dregur dám af fyrri verkum hans m.a. kampavíns steypugjörningnum, en í salnum hefur listamaðurinn komið fyrir margra tonna steypuklumpi sem mótaður var í holu sem grunnskólanemendur aðstoðuðu hann við að moka. Holan, sem staðsett er á Miklatúni, mun standa óhreyfð og afgirt á meðan á sýningu Ásmundar stendur í Hafnarhúsinu.
Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.