Sýningaropnun í Hafnarhúsi – Ingibjörg Sigurjónsdóttir: Þetta er okkar fyrsta og síðasta verk
Ingibjörg Sigurjónsdóttir opnar sýningu sína Þetta er okkar fyrsta og síðasta verk laugardaginn 20. ágúst kl. 17 í D-sal Hafnarhússins. Ingibjörg er fjórði listamaðurinn til að sýna í D-salnum árið 2016. Í verkum sínum skúlptúrgerir hún það ljóðræna og hið óhlutbundna í leit sinni að sannleikanum og fegurðinni.
Ingibjörg er fædd árið 1985 í Reykjavík, hún lauk BA gráðu frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2010 og hefur tekið þátt í sýningum, gjörningum og öðrum verkefnum bæði hér á Íslandi og erlendis. Ingibjörg býr og starfar í Reykjavík.
Í D-sal Hafnarhússins eru að jafnaði sýnd verk eftir listamenn sem ekki hafa áður haldið einkasýningar í stærri söfnum landsins. Markmið sýningaraðarinnar er að gefa efnilegum listamönnum tækifæri til að vinna innan veggja safnsins og beina athygli gesta að nýjum og áhugaverðum hræringum innan listheimsins. Á árinu 2016 eru áætlaðar alls fimm sýningar í sýningaröðinni.
Sýningarstjóri er Bryndís Erla Hjálmarsdóttir.
Sýningin stendur yfir til 13. október 2016.