24. október 2016 - 12:00
24. október 2016 - 15:00

Fjölskylduleiðsögn um sýningu Hildar Bjarnadóttur: Vistkerfi lita

Staður viðburðar: 
Kjarvalsstaðir

Verkin á sýningunni eru afrakstur áhugaverðs ferlis þar sem Hildur notast við íslenska jurtir til litunar. Hún vefar málverk úr handlituðum þráðum og skapar hálfgert völundarhús úr jurtalituðum silkidúkum. Á sýningunni mynda verk Hildar heildar innsetningu í vestursal Kjarvalsstaða. Þessi forvitnilega sýning hefur að geyma fjöldan allan af ólíkum plöntum en ekki í þeirri mynd sem við þekkjum þær helst, því listakonan býr til liti úr plöntunum í verk sín með áhugaverðri útkomu. Þetta munum við skoða nánar og velta fyrir okkur hvernig blágresi og berjalyng fá nýtt líf í listaverkum  hennar.

Una Margrét Árnadóttir, myndlistarmaður, leiðir börn og foreldra í gegnum sýninguna og fær þau til þátttöku í gegnum leit og leik. Leiðsögnin sem fer fram á íslensku er haldin í tilefni af haustfríi í grunnskólum Reykjavíkur og er þátttaka ókeypis.

Verð viðburðar kr: 
0
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.