Veldu ár

2024 (9)
2023 (22)
2022 (16)
2021 (21)
2020 (21)
2019 (27)
2018 (19)
2017 (21)
2016 (18)
2015 (20)
2014 (19)
2013 (17)
2012 (17)
2011 (22)
2010 (26)
2009 (25)
2008 (24)
2007 (26)
2006 (14)
2005 (16)
2004 (24)
2003 (32)
2002 (18)
2001 (20)
2000 (19)
1999 (13)
1998 (11)
1997 (14)
1996 (17)
1995 (17)
1994 (17)
1993 (22)
1992 (27)
1991 (24)
1990 (24)
1989 (25)
1988 (38)
1987 (38)
1986 (26)
1985 (28)
1984 (34)
1983 (28)
1982 (30)
1981 (26)
1980 (27)
1979 (21)
1978 (23)
1977 (21)
1976 (24)
1975 (19)
1974 (11)
1973 (11)
21.02.2019
19.05.2019

Anna Guðjónsdóttir: Hluti í stað heildar

Anna Guðjónsdóttir sýnir nýtt verk í mörgum hlutum sem tekur yfir allan sýningarsalinn. Listsköpun Önnu á rætur í málverkahefðinni þar sem tekist er á við sígildar spurningar um mörk tvívíðs, málaðs flatar og þrívíðs, raunverulegs rýmis – mörk frummyndar og eftirmyndar. Anna kallar fram hugmyndir sínar með tilvísun í landslag og byggingarlist ásamt því að styðjast við form sýningarskápa. Á sýningunni Hluti í stað heildar umbreytist sýningarsalurinn í nokkurs konar sýningarskáp sem gestir ganga inn í, umvafðir málverkum sem spegla rýmið sjálft og opna jafnframt inn í aðra og ófyrirséða heima. 

Undanfarin ár hefur listamönnum verið boðið að takast á við A-sal Hafnarhússins með nýjum innsetningum. Arkítektúr salarins einkennist af voldugum súlum hins gamla vöruhúss og stórum gluggum sem fylla upp í gömlu hleðsludyrnar. Skemmst er að minnast sýninga Ingólfs Arnarssonar, Jarðhæð (2018), Ilmar Stefánsdóttur, Panik (2017) og Moniku Grzymala, Hugboð (2016). Allar kölluðust þær með ólíkum hætti á við umhverfið. Í kjölfar sýningar Önnu Guðjónsdóttur sýnir Finnbogi Pétursson nýja innsetningu í sama sal. 

Anna Guðjónsdóttir (f. 1958) er fædd og uppalin í Reykjavík. Eftir tveggja ára nám í höggmyndadeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands fór hún til Þýskalands í myndlistarnám við Listaháskóla Hamborgar þaðan sem hún brautskráðist árið 1992. Anna hefur hlotið margvísleg verðlaun á alþjóðavettvangi fyrir myndlist sína. Hún hefur haldið sýningar víðs vegar um heim en nokkuð er um liði frá því hún sýndi síðast á Íslandi. Anna er búsett í Hamborg en er alltaf með annan fótinn hér á landi. 

 

 

Listamaður/-menn: 
Sýningarstjóri/-ar: 
Markús Þór Andrésson
Boðskort: 
Myndir frá opnun: 
Myndbönd

Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.

Viðburðir tengdir sýningu

Hafnarhús
21. febrúar 2019 - 17:00
Leiðsögn listamanns: Anna Guðjónsdóttir
Hafnarhús
24. febrúar 2019 - 15:00
Hafnarhús
7. mars 2019 - 20:00
Íslenski dansflokkurinn: THIS GRACE
Hafnarhús
2. maí 2019 - 17:30 til 20:00
Anna Guðjónsdóttir: Hluti í stað heildar
Hafnarhús
19. maí 2019 - 15:00