Veldu ár
D19 Hulda Rós Guðnadóttir
Sýning Huldu Rósar Guðnadóttur (1973) í D-salnum nefnist Hops Hopsi og samanstendur af tíu rása myndbandsinnsetningu sem hún gerði árið 2010. Titilinn er fenginn að láni frá tveimur trúðum sem voru helstu gleðigjafar í skemmtigarðinum Spreepark í austur Berlín áður en starfsemi hans lagðist af um síðustu aldamót.
Hulda Rós hefur sýnt kvikmyndaverk sín, gjörninga og innsetningar frá árinu 2004. Hún er með meistaragráðu í gagnvirkri hönnun frá Middlesex University í London, B.A. í myndlist frá LHÍ og B.A. í mannfræði frá HÍ. Hulda Rós býr og starfar í Reykjavík og Berlín.
Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.