Veldu ár
D45 Baldvin Einarsson: Op
Á sýningunni Op snýr Baldvin sýningarsalnum á rönguna. Á veggjunum eru op sem minna á íburðarmiklar bréfalúgur en þjóna þó ekki slíkum tilgangi. Bréfalúgur eru gáttir upplýsinga milli einkarýmis og almannarýmis. Hér staðsetur listamaðurinn verk sitt utandyra en innan veggja safnsins og umgjarðirnar kringum opin eru rammar utan um tómið milli hins ytra, og hins óséða og óræða innra.
Baldvin býður áhorfendum að stíga inn í rými valmöguleika. Þar gefst þeim kostur á að máta eina eða fleiri fullyrðingar við sig sjálfa, vega þær og meta. Þeir fá tækifæri til þess að finna sig í sýningunni, að enduruppgötva gleymd sjálf eða jafnvel finna sér nýtt hlutskipti í lífinu. Eða hvað? Er allt saman fyrirfram ákveðið og valið blekking ein?
Baldvin Einarsson er fæddur árið 1985 á Íslandi en býr og starfar í Antwerpen í Belgíu. Hann útskrifaðist með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2011 og lauk meistaraprófi í sömu grein frá Konunglegu Akademíunni í Antwerpen árið 2013. Hann stofnaði og rak, ásamt öðrum, sýningarýmin Kunstschlager í Reykjavík og ABC Klubhuis í Belgíu. Baldvin hefur sýnt verk sín víða á Íslandi, meðal annars í Safni Péturs Arasonar, Harbinger, Kling & Bang, Listasafni Reykjavíkur, Listasafni Árnesinga, Hafnarborg og víðsvegar um Evrópu en einna helst í Belgíu.
Baldvin er 45. listamaðurinn til að sýna í sýningaröð Listasafns Reykjavíkur í D-sal. Sýningaröðin í D-sal hóf göngu sína árið 2007. Hér er listamönnum sem hafa mótandi áhrif á íslenska myndlistarsenu boðið að halda sína fyrstu einkasýningu í opinberu safni.
Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.