Veldu ár
Friðarsúlan
Friðarsúlan í Viðey er listaverk eftir Yoko Ono sem hún tileinkaði eiginmanni sínum heitnum, tónlistarmanninum John Lennon. Friðarsúlan er tendruð á fæðingardegi hans, 9. október ár hvert og slökkt á henni á dánardegi hans 8. desember, en hann féll frá árið 1980.
Nú bregður Friðarsúlan geislum sínum upp í næturhimininn til að minnast giftingar og hveitibrauðsdaga þeirra Johns og Yoko.
Ljós Friðarsúlunnar sést vel á höfuðborgarsvæðinu en einnig má sjá hana í beinni útsendingu hér.
Í ljósi sérstakra aðstæðna í heiminum hefur Friðarsúlan logað linnulaust frá því í desember á síðasta ári.
Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.