Veldu ár
Georg Guðni
Á sýningunni eru málverk eftir Georg Guðna. Georg Guðni Hauksson er einn af þeim listamönnum sem á síðasta áratug hefur átt mikinn þátt í að koma á nýjum tengslum myndlistar og íslenskrar náttúru, tengslum sem byggja á næmri skynjun á hið ónefnda umhverfi sem finna má allt í kring, formgerð þess og litaspil fremur en endilega lýsingu ákveðinna staðhátta. Hógvær og kyrrlát verk hans hafa þróast hægt og sígandi út frá þeim bakgrunni sem tengir sýn Georgs Guðna á náttúruna við listamenn fyrri ára, en þau bera einnig með sér tilvísun í þá þróun hugmyndalistar og óhlutbundins myndmáls, sem hefur verið ráðandi afl í íslenskri myndlist á síðari hluta aldarinnar.
Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.