Veldu ár
Íslensk vídeólist frá 1975-1990
Vídeó var nýr miðill í myndlist á áttunda áratug 20. aldar en hann byggist á rafrænni tækni og vélbúnaði. Möguleikar listamanna til að vinna vídeóverk á þessum tíma réðust af því hvaða aðgang þeir höfðu að búnaði. Þegar handhæg upptökutæki og myndsegulbönd komu á markað í Bandaríkjunum árið 1967 varð til ný listgrein sem kallaðist vídeólist. Steina og Woody Vasulka tóku þátt í að móta þessa nýju listgrein í Bandaríkjunum. Steina sýndi verk sín í fyrsta skipti á Íslandi árið 1984, um sama leyti og fyrstu íslensku myndlistarmennirnir, sem kynnst höfðu vídeógerð í námi sínu, sneru heim frá Hollandi. Þeir sýndu afraksturinn á sýningum hér á landi en ekki blés þó byrlega fyrir þeim íslensku listamenn sem hugðust vinna að vídeóverkum á heimaslóðum. Það er fyrst með framleiðslu tónlistarmyndbanda, sem tók að eflast hér á landi á síðari hluta níunda áratugarins að listamenn fá raunveruleg tækifæri til að leika sér með möguleika vídeósins.
Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.