Veldu ár
Jóhannes S. Kjarval: Hugur og heimur
Kjarvalsstaðir voru opnaðir á ný eftir endurbætur þann 5. febrúar með umfangsmikilli Kjarvalssýningu sem er bæði í austur- og vestursal safnsins. Sýningin er tvískipt en meginuppistaða hennar eru sjaldséð verk úr einstæðu einkasafni hjónanna Þorvaldar Guðmundssonar (1911-1998) og Ingibjargar Guðmundsdóttur (1908-2004), sem varðveitt eru í Gerðarsafni, en einnig eru sýnd verk úr safneign Listasafns Reykjavíkur. Á sýningunni gefst gott tækifæri til að kynnast mörgum lykilverkum frá ferli listamannsins og fá innsýn í þau meginstef sem voru uppistaðan í lífsverki hans. Annars vegar landið í öllum sínum fjölbreytileika og hins vegar það líf og þær táknmyndir sem Kjarval skynjaði í landinu, það sem hugurinn nemur ekki síður en það sem augað sér.
Í einkasafni þeirra Þorvaldar og Ingibjargar eru mörg lykilverk listamannsins þar á meðal Lífshlaupið sem er stór veggmynd frá vinnustofu listamannsins í Austurstræti. Kjarval lauk við að mála Lífshlaupið árið 1933 en í verkinu má greina ýmis atriði sem koma endurtekið fyrir í verkum hans. Þar eru landið og lífsbaráttan sýnileg um leið og greina má fantasíuna sem einkennir stóran hluta ævistarfs Kjarvals.
Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.