Veldu ár
John Baldessari - Á meðan eitthvað er að gerast hér er eitthvað annað að gerast þar: Verk 1965 - 2001
John Baldessari er bandarískur ljósmyndari og listamaður (f. 1931), sem hefur verið einn fremsti fulltrúi hugmyndalistarinnar í heiminum undanfarna þrjá áratugi. Baldessari vinnur mikið með ljósmyndir og orðmyndanir af ýmsu tagi í verkum sínum, þó hann hafi byrjað feril sinn sem listmálari, en hefur einnig unnið í kvikmyndum.
Þannig hefur merking og merkingarleysi verið áberandi viðfangsefni í fjölda verka hans, sem hafa átt drjúgan þátt í að beina sjónum manna í hugmyndalistinni að hinu almenna og hversdagslega í umhverfinu sem verðugu viðfangsefni í listrænum skilningi.
Baldessari hefur verið valinn sem fulltrúi Bandaríkjanna á ýmsum þekktum alþjóðasýningum, s.s. Documenta í Kassel og Tvíæringnum í Feneyjum, þar sem hann hefur hlotið ýmsar viðurkenningar, auk viðurkenninga í heimalandi sínu. Þetta er fyrsta einkasýning listamannsins á Norðurlöndum.
Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.