Veldu ár
Kvennatími – Hér og nú þrjátíu árum síðar
Hugmyndin á bak við samsýninguna Kvennatími – Hér og nú þrjátíu árum síðar er að kalla aftur saman á þriðja tug kvenna sem sýndu saman undir heitinu Hér og nú á Kjarvalsstöðum haustið 1985. Sýningin var jafnframt einn umfangsmesti viðburður Listahátíðar kvenna sem efnt var til vegna loka kvennaáratugar Sameinuðu þjóðanna. Tilgangur hátíðarinnar var að gera sýnilegt framlag kvenna á sviði lista- og menningar. Konurnar sem valdar voru til þátttöku á Hér og nú árið 1985 voru margar rétt að hefja ferilinn en aðrar höfðu verið virkar í sýningarhaldi á liðnum áratug. Tilefni nýju sýningarinnar er einnig hátíð sem tengist konum en á þessu ári er haldið upp á 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna hér á landi. Líkt og á sýningunni 1985 er lögð áhersla á að sýna ný verk og var öllum konunum á Hér og nú boðin þátttaka en þær eru allar enn virkar í listsköpun og sýningarhaldi, utan tveggja sem eru látnar. Verkin á sýningunni spanna ýmsar aðferðir, miðla og hugmyndir.
Sýningin Kvennatími – Hér og nú þrjátíu árum síðar snýst um að fylgja þessum hópi kvenna eftir og grennslast fyrir um hvað þær eru að fást við í listsköpun sinni um þessar mundir. Í ljósi þess að sýningin brúar jafnframt þrjátíu ára bil, er skyggnst eftir „tíma“ kvennanna með því að veita innsýn í sköpunarferli og aðferðir hvers og eins listamanns. Ásamt fullunnum verkum, verða því einnig til sýnis skissur, stúdíur, ljósmyndir eða annað sem tengist slíku ferli. Þá verða á veggjum textabrot sem eru tilvitnanir í samtöl sýningarstjóra við listamennina á vinnustofum þeirra, en þessi sýningarhluti tengist vangaveltum um hvort kyn listamannanna hafi með einhverjum hætti mótað ferilinn og hann hafi í þeim skilningi verið kvennatími.
Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.