Veldu ár
Listaháskóli Íslands - Útskriftarsýning 2008
Samvinnuverkefni Listasafns Reykjavíkur og Listaháskóla Íslands þar sem útskriftarnemendur úr myndlistar-, hönnunar- og byggingarlistardeild skólans sýna lokaverkefni sín.
Verk nemenda úr myndlistardeild og hönnunar- og arkitektúrdeild Í Listasafni Reykjavíkur, Kjarvalsstöðum. Skartgriparæktun í gróðurhúsi, retro snjósleði, Menningar- og náttúrusetur á Álftanesi, vídeóskúlptúrar, ljósmyndir, skófatnaður, sprengt mótorhjól, rusl í rými, hlaupandi menn, innsetningar, fatahönnun, skilveggur úr pappakössum, ljósgjafi, veggspjöld, sérsmíðaður borðbúnaður, gagnvirk vídeóverk, verslun smákaupmanns, leturtýpur, gjörningar, fánastöng, útilistaverk, bækur og bátur uppi á þaki.
Þetta og margt fleira getur að líta á útskriftarsýningu sextíu og þriggja nemenda myndlistardeildar og hönnunar-og arkitektúrdeildar Listaháskólans. Sýningin er í samvinnu við Listasafn Reykjavíkur. Verk nemenda á sýningunni eru afrakstur þriggja ára náms við Listaháskólann þar sem markmiðið hefur verið að skapa nemendum aðstöðu til að mennta sig sem listamenn og gera þá reiðubúna að takast á við víðtæk viðfangsefni á skapandi og gagnrýninn hátt með forvitni, áræði og framsækni að leiðarljósi.
Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.