Veldu ár
Myndlistin þeirra: Klambrar Bistrø og Marentza Poulsen
Á sýningunni Myndlistin okkar er kubbur þar sem settar er upp smásýningar undir heitinu Myndlistin þeirra.
Þar býður safnið samstarfsaðilum sínum og fastagestum gegnum árin að velja saman verk úr safneign Listasafns Reykjavíkur eftir eigin höfði.
Marentza Poulsen og samstarfsfólk hennar á Klömbrum Bistro á Kjarvalsstöðum hefur hér valið listaverk í kubbinn og endurspeglar valið á skemmtilegan hátt starfsemi veitingastaðarins.
Gestasýningarstjórar í heild sinni eru Klambrar bistro, Bræðurnir Baldursson, Hlutverkasetur, Íslenski dansflokkurinn og nemendur í Víkurskóla.
Smásýningarnar standa aðeins rúma viku í senn og dreifast yfir sýningartímabilið.
Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.