Veldu ár
Nýmálað II
Á síðustu árum hefur verið mikil gróska í málaralist víða um heim. Fjölbreytnin er eftirtektarverð. Engin ein stefna eða söguleg hefð virðist ríkja. Ísland er þar engin undantekning. Listamenn á öllum aldri, sem aðhyllast ólíkar liststefnur og hugmyndafræði, hafa valið málverkið sem sinn helsta listmiðil. Tilgangurinn með þessari sýningu er að gefa sneiðmynd af stöðu málverksins hér á landi. Áherslan er á hvernig listamenn vinna með málningu á flöt fremur en á útvíkkun miðilsins eða hvernig málverkið hefur tengst öðrum miðlum. Sýningin er í tveimur hlutum, Nýmálað 1 í Hafnarhúsi (6. febrúar til 19. apríl, 2015) og Nýmálað 2 á Kjarvalsstöðum. Alls eru sýnd verk eftir 88 listamenn og hafa þau öll verið unnin á síðustu tveimur árum. Þetta er í fyrsta sinn sem svo víðtæk úttekt á íslensku samtímamálverki er gerð.
Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.