Veldu ár
RAFALL: Útskriftasýning LHÍ 2023
Útskriftarsýning BA nemenda Listaháskóla Íslands í myndlist, hönnun og arkitektúrverður opnuð fimmtudaginn 18. maí kl. 14.00 í Hafnarhúsi
Listasafn Reykjavíkur hýsir útskriftarsýningu nemenda á BA stigi í myndlistardeild, hönnunardeild og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands.
Á sýningunni getur að líta lokaverkefni 74 nemenda í myndlist, grafískri hönnun, arkitektúr, fatahönnun og vöruhönnun. Verkin á sýningunni endurspegla áherslur, nám, rannsóknir og listsköpun nemenda síðastliðin þrjú ár.
Sýningastjórar eru Arnar Ásgeirsson (myndlist), Rúna Thors (vöruhönnun), Þórunn María Jónsdóttir (fatahönnun), Adam Flint (grafísk hönnun), Dagur Eggertsson og Hjördís Sóley Sigurðardóttir (arkitektúr).
Sýningin stendur til mánudags 29. maí og er aðgangur ókeypis á meðan sýningunni stendur.
Öll velkomin.
Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.