Veldu ár

2024 (9)
2023 (22)
2022 (16)
2021 (21)
2020 (21)
2019 (27)
2018 (19)
2017 (21)
2016 (18)
2015 (20)
2014 (19)
2013 (17)
2012 (17)
2011 (22)
2010 (26)
2009 (25)
2008 (24)
2007 (26)
2006 (14)
2005 (16)
2004 (24)
2003 (32)
2002 (18)
2001 (20)
2000 (19)
1999 (13)
1998 (11)
1997 (14)
1996 (17)
1995 (17)
1994 (17)
1993 (22)
1992 (27)
1991 (24)
1990 (24)
1989 (25)
1988 (38)
1987 (38)
1986 (26)
1985 (28)
1984 (34)
1983 (28)
1982 (30)
1981 (26)
1980 (27)
1979 (21)
1978 (23)
1977 (21)
1976 (24)
1975 (19)
1974 (11)
1973 (11)
31.05.2019
01.09.2019

Steinunn Þórarinsdóttir: Tákn

  • Steinunn Þórarinsdóttir: Tákn

Tákn er verk sem sett er upp á þaki Arnarhvols við Ingólfsstræti í Reykjavík í tilefni af ári listar í almannarými. Verkefnið er unnið í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur með stuðningi frá borgarsjóði.

Steinunn Þórarinsdóttir hefur unnið fjölda verka í almannarými hérlendis sem erlendis og það hefur verið stór hluti af hennar listrænu starfsemi alla tíð. Um er að ræða 11 fígúrur úr steyptu áli sem Steinunn vann á árunum 2015-2017 – upphaflega fyrir sögusafn þýska hersins í Dresden.

Tákn var sett upp á safnabygginguna í Dresden sem áður hýsti vopnabúr þýska hersins. Þar höfðu staðið fígúrur í anda hernaðar en þeim var stolið í stríðinu árið 1943 og hafa aldrei fundist þrátt fyrir töluverða leit. 

Steinunn Þórarinsdóttir hefur verið starfandi myndlistarmaður í 40 ár.  Hún hefur unnið að fígúratífum skúlptúr frá byrjun ferils síns. Fígúrur hennar eru kynlaus tákn mennskunnar.  Verk Steinunnar hafa frá upphafi tengst íslenskri náttúru sterkum böndum.  Samtal mannsins við náttúruna, umhverfi sitt og samfélagið er leiðarstef í list hennar. Steinunn hefur gert fjöldann allan af verkum sem eru áberandi í borgarlandinu. 

Steinunn hlaut BA gráðu í myndlist frá Háskólanum í Portsmouth í Bretlandi. Hún stundaði framhaldsnám í Listaakademíunni í Bologna á Ítalíu. Steinunn hefur fengið ýmis verðlaun og viðurkenningar, m.a. sæmdi forseti Íslands hana riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf í þágu myndlistar hérlendis og erlendis árið 2009.

Steinunn starfar með Listhúsinu Tveir Hrafnar í Reykjavík, Osborne Samuel Gallery í London, Galerie Christoffer Egelund í Kaupmannahöfn og Scott White Contemporary í Bandaríkjunum.  

Listamaður/-menn: 
Sýningarstjóri/-ar: 
Ólöf Kristín Sigurðardóttir

Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.

Viðburðir tengdir sýningu

Leiðsögn listamanns: Steinunn Þórarinnsdóttir
Arnarhvoll
24. ágúst 2019 - 16:00