2. september 2017 - 13:00
16. september 2017 - 13:00
Barna- og fjölskylduleiðsögn: Guð, hvað mér líður illa
Staður viðburðar:
Hafnarhús
Fræðslufulltrúi Listasafns Reykjavíkur segir börnum og fullorðnum frá sýningunni Guð, hvað mér líður illa. Þetta er fyrsta safnsýning Ragnars á heimavelli eftir sigurför á erlendri grundu. Sýningin endurspeglar óð Ragnars til listarinnar í allri sinni dýrð, til tónlistar, leikhúss, kvikmynda, bókmennta og, að sjálfsögðu, myndlistar.
Hylling listamannsins birtist í völdum verkum, frá árinu 2004 til dagsins í dag; lifandi gjörningum, stórum myndbandsinnsetningum, ljósmyndum, höggmyndum, málverkum og teikningum.
Aðgöngumiði á safnið gildir.
GAMMA er aðalstuðningsaðili sýningarinnar.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.