19. mars 2016 - 13:00 til 16:00

Draumalandslag: Námskeið fyrir 6-8 ára

Staður viðburðar: 
Kjarvalsstaðir

Ferðalag um hugmynda- og ævintýraheim Kjarvals í hugmyndasmiðjunni á Kjarvalsstöðum. Þorgerður Ólafsdóttir myndlistarmaður skoðar fantasíumálverk Kjarvals með börnunum en verkin eru innblásin af íslenskri náttúru og þjóðsögum. Námskeiðið er haldið í tengslum við sýninguna Jóhannes S. Kjarval: Hugur og heimur. Þátttaka ókeypis. Nánari upplýsingar í síma 411 6400 eða á fraedsludeild@reykjavik.is

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.