24. júní 2018 - 15:00

Einskismannsland: Leiðsögn sýningarstjóra

Ólöf K. Sigurðardóttir, sýningarstjóri og safnstjóri Listasafns Reykjavíkur
Staður viðburðar: 
Kjarvalsstaðir

Ólöf K. Sigurðardóttir, sýningarstjóri og safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, mun leiða gesti um sögulegan hluta sýningarinnar Einskismannsland – Ríkir þar fegurðin ein?  Þar er að finna málverk eftir 15 valinkunna listamenn af víðernum landsins auk ljósmynda, skissa og kvikmynda frá hálendinu.

Á sýningunni er sjónum beint að verkum listamanna sem endurspegla tengsl Íslendinga við víðerni landsins og breytilegt verðmætamat gagnvart náttúrunni.

Aðgöngumiði á safnið gildir.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.