Fimmtudagurinn langi
Síðasti fimmtudagur mánaðarins er Fimmtudagurinn langi!
Dagskrá Listasafns Reykjavíkur
Kjarvalsstaðir
Kl. 17.00 og 18.30
Heimildamyndin Blindrahundur sem fjallar um ævi og störf Birgis Andréssonar verður sýnd í fundarsal.
Kl. 20.00
Leiðsögn og sýning heimildamyndarinnar Blindrahundur.
Kristján Loðmfjörð og Tinna Guðmundsdóttir höfundar heimildamyndarinnar Blindrahunds, ganga um sýninguna Eins langt og augað eygir, segja frá tilurð myndarinnar og kynnum sínum af listamanninum Birgi Andréssyni.
Skráning HÉR
Sýningar: Birgir Andrésson: Eins langt og augað eygir og Jóhannes S. Kjarval: Í íslenskum litum
Ókeypis aðgangur frá kl. 17-22.00 – allir velkomnir!
Klambrar Bistró er opið til kl. 22.00
Athugið að engar sýningar eru í gangi í Hafnarhúsi þar sem verið er að undirbúa sýninguna Erró: Sprengikraftur mynda sem verður opnuð 9. apríl.
Fjöldi safna og sýningastaða býður upp á lengdan opnunartíma síðasta fimmtudagskvöld hvers mánaðar. Þá er tilvalið að bregða sér af bæ og skoða fjölbreyttar listasýningar, kíkja við á vinnustofum listamanna, heimsækja listamannarekin rými, gallerí og söfn – og upplifa líflega myndlist í miðborginni!