Fimmtudagurinn langi í september
Síðasti fimmtudagur mánaðarins er fimmtudagurinn langi!
Dagskrá í Listasafni Reykjavíkur
Samsýningin Haustlaukar II hefst með gjörningi Styrmis Arnar Guðmundssonar við spennistöðina við Marshall húsið á Granda kl. 17.00.
Kjarvalsstaðir
Sýningar: Allt sem sýnist – Raunveruleiki á striga 1970-2020 og Jóhannes S. Kjarval: Hér heima
Leiðsögn á pólsku um Allt sem sýnist kl. 20.00
Athugið að vegna fjöldtakmarkana er skráning nauðsynleg HÉR
Klambrar Bistro - eldhúsið opið til kl. 20.00
Pólsk rauðrófusúpa á matseðlinum
Happy Hour frá kl. 17-19.00
Hafnarhús
Sýningar: Gilbert & George: The Great Exhibition og Erró: Sæborg.
Við skjótum títuprjónum - útgáfuhóf ljóðabókar og frumsýning á nýju myndbandi eftir Hallgrím Helgason.
Fjöldi safna og sýningastaða býður upp á lengdan opnunartíma síðasta fimmtudagskvöld hvers mánaðar. Þá er tilvalið að bregða sér af bæ og skoða fjölbreyttar listasýningar, kíkja við á vinnustofum listamanna, heimsækja listamannarekin rými, gallerí og söfn – og upplifa líflega myndlist í miðborginni!
Ókeypis aðgangur frá kl. 17-22.00.