9. september 2017 - 10:00 til 24. september 2017 - 17:00

Gjörningur: Taktu mig hérna við uppþvottavélina - minnisvarði um hjónaband

Frá æfingu. Ragnar Kjartansson: Taktu mig hérna við uppþvottavélina - minnisvarði um hjónaband. Ljósmynd: Hildur Inga Björnsdóttir.
Staður viðburðar: 
Hafnarhús

Gjörningurinn er þriðji og síðasti gjörningurinn sem fram fer á sýningunni Guð, hvað mér líður illa eftir Ragnar Kjartansson í Hafnarhúsi.

Tíu tónlistarmenn syngja og leika daglangt á gítar yfir tveggja vikna tímabil. Þeir eru dreifðir um sýningarsalinn, eins og hver í sínum heimi en allir þó í samhljómi. Þeir tylla sér á stóla, flatmaga á beddum, rölta um og hangsa með hljóðfærin sín á meðan tómar bjórflöskur safnast fyrir kringum þá. Að baki er sýnt síendurtekið þriggja mínútna myndband af karli og konu í ástarleik í eldhúsi. Atriðið er úr fyrstu alíslensku kvikmyndinni í fullri lengd, Morðsögu frá 1977, og leikararnir eru foreldrar Ragnars.

Í fjölskyldunni gengur sú saga að listamaðurinn hafi verið getinn einmitt um það leyti þegar myndin var tekin upp. Ragnar bað tónskáldið Kjartan Sveinsson að umbreyta hinu stuttaralega samtali þessa ljósbláa atriðisins í fjölradda söngverk fyrir trúbadora. Gjörningurinn fór upphaflega fram í BAWAG P.S.K. Contemporary, í Vínarborg.

Aðgöngumiði á safnið gildir.

GAMMA er aðalstuðningsaðili sýningarinnar.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.