1. október 2023 - 13:00 til 15:00

Hafmeyjur og furðuverur – Fjölskylduleiðsögn og listasmiðja

Leikum að list í Ásmundarsafni
Staður viðburðar: 
Ásmundarsafn

Leikum að list! Fyrsta sunnudag hvers mánaðar!

Komdu og skoðaðu hafmeyjur og aðrar furðuverur sem birtast í höggmyndum Ásmundar Sveinssonar og kennara hans, Carls Milles og mótaðu svo þínar eigin!

Umsjón með smiðju: Ariana Katrín Katrínardóttir, verkefnastjóri fræðslu og miðlunar.

Leikum að list er yfirskrift fjölskyldudagskrár Listasafns Reykjavíkur. Þar eru börn sérstaklega boðin velkomin í safnið ásamt foreldrum sínum til þess að skoða og upplifa myndlist í gegnum leiki og skemmtilegar umræður. Boðið er upp á fjölskylduleiðsagnir sem sniðnar eru að yngri áhorfendum um sýningar í öllum safnhúsunum. Þá eru listasmiðjur fyrir börn og fjölskyldur þeirra þar sem gaman er að skapa sín eigin listaverk saman eftir heimsókn í sýningarsalina. 

Dagskráin er miðuð að því að börn komi í fylgd fullorðinna og að heimsóknin sé þannig skemmtileg og skapandi samvera milli kynslóða.

Frítt fyrir börn yngri en 18 ára. Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.