16. mars 2017 - 20:00

Hrina: Spurt og svarað - Ráðhildur Ingadóttir, Libia Castro & Ólafur Ólafsson

Staður viðburðar: 
Hafnarhús

Boðið er upp á samtal við listamenn sem eiga verk í sýningaröðinni Hrinu. Rætt verður um tilurð verkanna, inntak þeirra og útfærslu, auk þess sem horft er til samhengis þeirra við önnur verk á ferli listamannanna sem og þróun vídeólistar almennt. Sigurður Trausti Traustason, deildarstjóri safneignar og rannsókna, og Markús Þór Andrésson, deildarstjóri sýninga og miðlunar, leiða samtalið og er gestum velkomið að taka þátt. 

Libia Castro (1970) & Ólafur Ólafsson (1973), hafa unnið saman síðan 1997 Allir gera það sem þeir geta (2008)
Verkið var unnið að beiðni Listasafnsins fyrir röð sýninga í A-sal þar sem ætlunin var að taka tengsl safnsins við almenningsrýmið utan veggja til gagnrýninnar skoðunar. Sýningarsalurinn varð að miðstöð samskipta, framleiðslu og miðlunar og mátti þar meðal annars sjá upptökustúdíó, klippiver og vídeóinnsetningu í stöðugri mótun, þar sem Libia og Ólafur gerðu tilraunir með tökur fyrir opnum tjöldum á meðan sýningin stóð yfir. Á þeim tíma urðu til 35 myndbönd sem sýndu „portrett" af einstaklingum úr mismunandi þjóðfélagsstéttum á Íslandi og með ýmiss konar menntun og sérhæfingu. Þátttakendur lýstu sjálfum sér, aðstæðum sínum og uppruna með hliðsjón af þeim stað sem þau búa á og ræddu við listamennina um allt milli himins og jarðar, hvort heldur af heimspekilegum, persónulegum eða pólitískum toga. Verkinu var ætlað að vera skrásetning af Reykjavík þá stundina í gegnum fólkið og frásagnir þeirra. Fjármálahrunið varð á miðju sýningarsímabilinu og varð staðurinn þannig að vettvangi vangaveltna og endurmats á meðan á ferlinu stóð. Í innsetningunni sjáum við vídeóportrettin sem eru síendurtekin og sýnd á mismunandi tímum hvert í samhengi við annað.  
Ráðhildur Ingadóttir (1959) Hale Bobb (1997)
Ráðhildur hefur í verkum sínum leitað leiða til að miðla eigin skynjun á kosmískum víddum alheimsins og staðsetningu manneskjunnar innan hans. Í verkinu Hale Bobb skráði hún annars vegar geómetrískar teikningar af spíralferlum og hins vegar upplýsingar um sporbraut halastjarna og hreyfingar plánetna. Skráningar þessar, á mörkum abstraktútreikninga og hlutbundins veruleika, silkiþrykkti Ráðhildur síðan á föt og bauð fólki að máta. Vídeóverkið skrásetur uppákomuna og sýnir sýningargesti klæðast fræðilegum vangaveltum sem fanga algild náttúrulögmál og óravíddir geimsins.
 

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.