3. mars 2019 - 15:00

Hringur ferhyrningur og lína: Leiðsögn sýningarstjóra

Hringur ferhyrningur og lína: Leiðsögn sýningarstjóra. Ljósmynd: Hildur Inga Björnsdóttir.
Staður viðburðar: 
Kjarvalsstaðir

Heba Helgadóttir og Ingibjörg Sigurjónsdóttir, sýningarstjórar sýningarinnar Hringur, ferhyrningur og lína á Kjarvalsstöðum, ræða við gesti um verkin á sýningunni, feril Eyborgar Guðmundsdóttur og fleira.

Eyborg Guðmundsdóttir (1924-1977) var sérstæður listamaður í íslenskum listheimi. Verk hennar byggja á fyrirmyndum geómetrískrar abstraktlistar þar sem sjónræn áhrif reglubundinna forma eru megináherslan, stíll sem kenndur er við op-list (e. optical). Nú stendur Listasafn Reykjavíkur fyrir fyrstu yfirlitssýningunni á verkum hennar. Ferill Eyborgar spannaði fimmtán ár, en hún náði að þróa persónulegt myndmál sem einkenndist af einföldum formum og sjónarspili. Aðgöngumiði á safnið gildir.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.