3. mars 2024 - 13:00

Keramiksmiðja í Ásmundarsafni

Staður viðburðar: 
Ásmundarsafn

Leikum að list! Fyrsta sunnudag hvers mánaðar.

Í keramiksmiðjunni fá þátttakendur að kynnast eiginleikum og töfrum náttúruleirs undir handleiðslu listamannsins Adriönnu Stanczak. Smiðjan hentar börnum á öllum aldri og verkefnin miða við aldur og getu hvers og eins.

Leikum að list er yfirskrift fjölskyldudagskrár Listasafns Reykjavíkur. Þar eru börn sérstaklega boðin velkomin í safnið ásamt foreldrum sínum til þess að skoða og upplifa myndlist í gegnum leiki og skemmtilegar umræður.

Dagskráin er miðuð að því að börn komi í fylgd fullorðinna og að heimsóknin sé þannig skemmtileg og skapandi samvera milli kynslóða.

Sýning: 
Verð viðburðar kr: 
0