21. janúar 2016 - 18:00 til 20:00
Kvöldopnun í Ásmundarsafni: Tunglskoðun
Staður viðburðar:
Ásmundarsafn
Fimmtudaginn 21. janúar mun Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness standa fyrir tunglskoðun í garðinum umhverfis Ásmundarsafn. Félagsmenn verða með nokkra stjörnusjónauka á staðnum og fræða gesti og gangandi um þennan næsta nágranna okkar í geimnum. Tunglskoðunin hefst kl. 18 og stendur til kl. 20.
Ásmundarsafn verður opið til kl. 20 á fimmtudögum í janúar og boðið verður upp á skemmtilega viðburði fyrir alla fjölskylduna á kvöldopnunum. Sýningin Geimþrá hefur hlotið frábærar viðtökur og var á lista Morgunblaðsins yfir fimm bestu sýningar ársins 2015.
Aðgangseyrir á safnið er kr. 1.500, ókeypis fyrir 18 ára og yngri. Menningarkorthafar geta boðið vini með sér á Ásmundarsafn endurgjaldslaust í janúar.
Sýning:
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.