20. febrúar 2022 - 14:00

Leiðsögn: Eins langt og augað eygir

Markús Þór Andrésson
Staður viðburðar: 
Kjarvalsstaðir

Markús Þór Andrésson, deildarstjóri sýninga og miðlunar, verður með leiðsögn um sýningu á verkum Birgis Andréssonar, Eins langt og augað eygir, á Kjarvalsstöðum.

Skráning HÉR

Eins langt og augað eygir er fjölbreytt og umfangsmikil yfirlitssýning á verkum myndlistarmannsins Birgis Andréssonar (1955-2007) sem tekur yfir nær alla Kjarvalsstaði. Birgir var leiðandi afl í íslenskri myndlist í meira en 30 ár en féll frá langt fyrir aldur fram. Birgir leitaði í brunn íslenskrar menningar, sagna, hefða og handverks þjóðarinnar og dró þar fram þætti sem hann síðan setti fram á sinn einstæða hátt í verkum sem tryggðu honum sess í íslenskri listasögu og aðdáun á alþjóðlegum vettvangi myndlistar. Sýningin veitir innsýn í áhrifamikinn feril listamannsins og tengir verk hans við innlenda og erlenda samtímalist. Sýnd eru yfir eitthundrað verk sem koma meðal annars úr safneign Listasafns Reykjavíkur, Listasafns Íslands, Nýlistasafnsins og Metropolitan safnsins í New York en einnig frá innlendum og erlendum einkasöfnurum.

Sýningarstjóri er bandaríski listfræðingurinn Robert Hobbs. Ásmundur Hrafn Sturluson er hönnuður sýningarinnar. Samhliða sýningunni kom út bók á ensku um ævistarf Birgis Andréssonar, In Icelandic Colour, en þar er að finna ritgerð eftir Hobbs með sama nafni. Bókin er fáanleg á Kjarvalsstöðum. Sýningin í Listasafni Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum nýtur stuðnings Arion banka.

Ókeypis fyrir börn og fullorðna í fylgd barna á sýningar safnsins á Kjarvalsstöðum og í Hafnarhúsi í Vetrarfríi grunnskólanna 17.-20. febrúar. Ásmundarsafn er lokað vegna sýningaskipta en Ásmundargarður er öllum opinn og tilvalið að nota appið Útilistaverk í Reykjavík / Reykjavík Art Walk til að fara í létta fjölskylduleiðsögn um garðinn.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.