10. ágúst 2017 - 20:00

Leiðsögn: Hildigunnur Birgisdóttir

Hildigunnur Birgisdóttir, stilla úr Heimsljósi eftir Ragnar Kjartansson.
Staður viðburðar: 
Hafnarhús

Hildigunnur Birgisdóttir, myndlistarmaður og samstarfsmaður Ragnars Kjartanssonar, tekur þátt í leiðsögn um sýninguna Guð, hvað mér líður illa í Hafnarhúsi. 

Eitt verkanna á sýningunni er myndbandsverkið Heimsljós – Líf og dauði listamanns sem byggt er á skáldsögu Halldórs Laxness. Verkið var tekið upp í Tyssen-Bornemizsa samtímalistasafninu í Vín með þátttöku ættingja og vina Ragnars úr reykvísku listalífi. Framleiðsluferlið allt var mánaðarlangur gjörningur þar sem sýningargestir gátu fylgst með framrás kvikmyndarinnar og vinnslunni við hana. Hildigunnur Birgisdóttir er ein þeirra íslensku listamanna sem tók þátt í gerð verksins m.a. annars með því að bregða sér í hlutverk Ólafs Kárasonar sem ungs manns.

Sýningin Guð, hvað mér líður illa endurspeglar óð Ragnars til listarinnar í allri sinni dýrð, til tónlistar, leikhúss, kvikmynda, bókmennta og, að sjálfsögðu, myndlistar. Hylling listamannsins birtist í völdum verkum, frá árinu 2004 til dagsins í dag; lifandi gjörningum, stórum myndbandsinnsetningum, ljósmyndum, höggmyndum, málverkum og teikningum.

Aðgöngumiði á safnið gildir.

GAMMA er aðalstuðningsaðili sýningarinnar.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.