10. mars 2024 - 14:00
Leiðsögn sýningarstjóra: Hendi næst
Staður viðburðar:
Ásmundarsafn
Becky Forsythe sýningarstjóri verður með leiðsögn um sýninguna Hendi næst sunnudaginn 10. mars kl. 14.00 í Ásmundarsafni.
Á þessari samsýningu mætast verk Ásmundar Sveinssonar (1893-1982) og samtímalistamanna sem skapa myndverk með eigin höndum og nýta rótgrónar handverkshefðir við listsköpun sína. Sýningin endurspeglar vaxandi áhuga samtímalistamanna sem og áhorfenda á handverki en jafnframt verður horft til baka til þess að gera grein fyrir því hvernig arfleifð Ásmundar Sveinssonar endurómar í framúrstefnulegri tjáningu samtímans.
Sýning:
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.