7. mars 2021 - 14:00
Leiðsögn sýningarstjóra: Hér heima
Staður viðburðar:
Kjarvalsstaðir
Edda Halldórsdóttir sýningarstjóri verður með leiðsögn um sýninguna Jóhannes S. Kjarval: Hér heima á Kjarvalsstöðum.
Athugið að skráning er nauðsynleg HÉR.
Í landslagsmyndum sínum birti Kjarval íslenska náttúru á gjörólíkan hátt en áður hafði tíðkast og kenndi landsmönnum að horfa á landið nýjum augum og meta fegurðina sem býr í hrauninu og mosanum við fætur okkar. Kjarval skipar stóran sess í íslenskri menningar- og listasögu og hefur veitt síðari kynslóðum listamanna ómældan innblástur. Kjarval málaði víða um land; á Þingvöllum og öðrum stöðum í nágrenni Reykjavíkur, á Snæfellsnesi, Skagaströnd, Austfjörðum og víðar.
Sýningunni lýkur sunnudaginn 14. mars.
Sýning:
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.