Leiðsögn sýningarstjóra: Hver er konan? Nýfundið málverk Kjarvals afhjúpað
Aðalsteinn Ingólfsson sýningarstjóri verður með leiðsögn um sýninguna Andlit úr skýjum – mannamyndir Jóhannesar S. Kjarvals á Kjarvalsstöðum sunnudaginn 11. september kl. 14.00. Í lok leiðsagnarinnar afhjúpar hann nýfundið málverk sem talið er vera af Láru miðli.
Vinsamlegast skráið ykkur HÉR
Á gjörvöllum ferli sínum vann Kjarval mannamyndir og á þessari yfirgripsmiklu sýningu fá gestir að kynnast þeim. Hér eru olíumálverk af þekktu fólki frá öllum tímabilum, vatnslitamyndir af ítölsku fólki frá 1920, úrval blek- og túskteikninga frá 1928-30, rauðkrítarmyndir af fjölskyldu og nánum vinum og lítt þekktar andlitsmyndir frá seinni árum hans. Loks má geta um hópmyndir hans sem aldrei hafa verið sýndar saman. Á sýningunni eru einnig allar fáanlegar sjálfsmyndir Kjarvals. Andlitsmyndir Kjarvals hafa skipað veglegan sess á yfirlitssýningum á verkum listamannsins og samsýningum af ýmsu tagi en til þessa hefur sjónum ekki verið beint að þessum myndum sérstaklega.