10. apríl 2022 - 14:00
Leiðsögn sýningarstjóra: Sprengikraftur mynda
Staður viðburðar:
Hafnarhús
Gunnar B. Kvaran sýningarstjóri segir frá sýningunni Erró: Sprengikraftur mynda í Hafnarhúsi.
Skráning HÉR
Erró er einn fárra íslenskra listamanna sem náð hafa fótfestu í heimi alþjóðlegrar myndlistar. Sprengikraftur mynda er heildstæð úttekt á hinum litríka ferli listamannsins sem hefur fengist við ýmsa miðla myndlistarinnar. Þar má finna allt frá gjörningum, vídeólist, grafík, fjölfeldi og klippimyndum, til stórra verka í almannarými og málverka á öllum skala, sem hafa unnið honum verðugan sess í evrópskri listasögu. Hér er á ferðinni umfangsmesta sýning sem sett hefur verið upp á verkum listamannsins hérlendis.
Sýning:
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.