4. mars 2021 - 20:00
Leiðsögn sýningarstjóra: WERK – Labor Move
Staður viðburðar:
Hafnarhús
Leiðsögn Birtu Guðjónsdóttur sýningarstjóra um sýninguna Hulda Rós Guðnadóttir: WERK – Labor Move í Hafnarhúsi.
Athugið að skráning er nauðsynleg HÉR.
Á einkasýningu sinni í A-sal Listasafns Reykjavíkur – Hafnarhúsi beinir Hulda Rós Guðnadóttir sjónum að samfélagslegum viðfangsefnum í staðbundinni innsetningu.
Innsetningin WERK – Labor Move er unnin sérstaklega fyrir salinn en Hafnarhúsið var upphaflega byggt sem vörugeymsluhús á hafnarbakkanum.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.