17. september 2017 - 15:00
Leiðsögn: Temma Bell og Jón Proppé sýningarstjóri
Staður viðburðar:
Kjarvalsstaðir
Leiðsögn á síðasta degi sýningarinnar Kyrrð með Temmu Bell, dóttir Louisu Matthíasdóttur, og Jóni Proppé, sýningarstjóra sýningarinnar.
Kyrrð er viðamikil yfirlitssýning á verkum listakonunnar Louisu Matthíasdóttur (1917-2000) þar sem kærkomið tækifæri gefst til að fá yfirsýn yfir feril listakonu sem á einstakan hátt hefur túlkað íslenskt landslag.
Aðgöngumiði á safnið gildir.
Sýning:
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.