13. júlí 2017 - 20:00
Leiðsögn: Tómas Örn Tómasson
Staður viðburðar:
Hafnarhús
Tómas Örn Tómasson, kvikmyndagerðarmaður og samstarfsmaður Ragnars Kjartanssonar, tekur þátt í leiðsögn um sýninguna Guð, hvað mér líður illa í Hafnarhúsi.
Tómar Örn stjórnaði upptökum á þremur verkum á sýningunni, Hellingur af sorg, Sviðsetningar úr vestrænni menningu og Heimsljós – líf og dauði listamanns. Tómas hefur komið að framleiðslu fjölda annarra verka með Ragnari, þar má nefnaThe Visitors, The Man og Seglskipið Timburmenn (SS Hangover).
Aðgöngumiði á safnið gildir.
GAMMA er aðalstuðningsaðili sýningarinnar.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.