LEIKUM AÐ LIST: Eyborgarsmiðja
Opin listasmiðja fyrir alla fjölskylduna þar sem hægt er að vinna skapandi og skemmtileg verkefni hvort heldur í anda Kjarvals eða tengd sýningu Eyborgar Guðmundsdóttur – Hringur, ferhyrningur og lína.
Aðgöngumiði á safnið gildir, en að sjálfsögðu er ókeypis fyrir börn fram til 18 ára aldurs. Gert er ráð fyrir að börn komi í fylgd fullorðinna og ekki er verra að hafa gengið í gegnum sýningarnar áður.
LEIKUM AÐ LIST er yfirskrift fjölskyldudagskrár Listasafns Reykjavíkur. Þar eru börn sérstaklega boðin velkomin í safnið ásamt foreldrum sínum til þess að skoða og upplifa myndlist í gegnum leiki og skemmtilegar umræður. Boðið er upp á fjölskylduleiðsagnir sem sniðnar eru að yngri áhorfendum um sýningar í öllum safnhúsunum. Þá eru listasmiðjur fyrir börn og fjölskyldur þeirra þar sem gaman er að skapa sín eigin listaverk saman eftir heimsókn í sýningarsalina. Við LEIKUM AÐ LIST reglulega allt árið um kring og það er um að gera að fylgjast með á dagskrársíðu safnsins. Fjölskyldurýmin eru síðan alltaf opin, Hugmyndasmiðjan á Kjarvalsstöðum, Stofa í Hafnarhúsinu og Augnablik í Ásmundarsafni.
Skráðu þig á póstlista Listasafns Reykjavíkur og fáðu upplýsingar um skemmtilega fjölskylduviðburði og aðrar uppákomur á vegum safnsins. Handhafar Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur fá frítt á alla viðburði safnsins.